![Útivistin Helsta áhugamálið er útivist og samvera með skemmtilegu fólki. Hér eru þær Ragnhildur í göngu með góðum hópi í Jökulfjörðum í sumar.](/myndir/gagnasafn/2024/08/03/6a8f8f91-4457-47b5-af3c-33e5f903a637.jpg)
Hanna Katrín Friðriksson fæddist í París í Frakklandi 4. ágúst 1964. Þegar hún var tæplega tveggja ára fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur, fyrst í Álfheimana en þegar hún var sex ára flutti fjölskyldan í fallegt hús í Neðra-Breiðholti sem foreldrar hennar höfðu byggt.
„Ég dvaldi aldrei í íslenskri sveit á sumrin sem barn en fór þess í stað oft til Danmerkur á æskuslóðir föður míns. Honum hafði mamma kynnst þegar hún var í námi í Kaupmannahöfn og þau bjuggu saman á pensjónati þar eftir að hann flutti eftir menntaskóla til borgarinnar frá Faaborg á Fjóni þar sem hann ólst upp.“
Mikil handboltakona
Hanna Katrín gekk í Breiðholtsskóla, síðan Hólabrekkuskóla og fór eftir grunnskólann í Menntaskólann í Reykjavík. Hún var mikil íþróttastelpa og lék handbolta með ÍR fram undir tvítugt og eftir það með Val
...