Tveir menn brutust inn í Ráðhús Reykjavíkur fyrr í vikunni í gegnum bílastæðakjallara hússins. Kjallarinn opnar sjálfkrafa klukkan 6.45 á morgnana og voru mennirnir mættir aðeins fimm mínútum seinna
![Innbrot Brutu glerhurð inn að skrifstofum borgarstjórnar.](/myndir/gagnasafn/2024/08/03/9a31bd80-2157-4ad4-974c-483c68c1da0d.jpg)
Innbrot Brutu glerhurð inn að skrifstofum borgarstjórnar.
— Morgunblaðið/Hákon
Drífa Lýðsdóttir
drifa@mbl.is
Tveir menn brutust inn í Ráðhús Reykjavíkur fyrr í vikunni í gegnum bílastæðakjallara hússins. Kjallarinn opnar sjálfkrafa klukkan 6.45 á morgnana og voru mennirnir mættir aðeins fimm mínútum seinna.
Þetta staðfestir Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri Reykjavíkurborgar, í samtali við Morgunblaðið.
Þá staðfestir lögreglan í samtali við blaðið að búið sé að bera kennsl á mennina og að málið sé í rannsókn.
Virðist sem engu hafi verið stolið
Mennirnir brutu einnig glerhurð á norðurhlið Ráðhússins.
Í fyrstu komust þeir ekki inn í nein herbergi nema salerni og mötuneyti. Annar þeirra fór
...