Hákon Þór Svavarsson varð í gær annar Íslendinga til að keppa í leirdúfuskotfimi með haglabyssu á Ólympíuleikum og sá fyrsti frá því Alfreð Karl Alfreðsson hafnaði í 47. sæti í greininni á leikunum í Sydney árið 2000
![Skytta Hákon Þór Svavarsson mundar haglabyssuna í leirdúfuskotfiminni þar sem þrjár umferðir fóru fram í gær.](/myndir/gagnasafn/2024/08/03/a4820cee-bcfb-488b-8034-d2cf7c125c13.jpg)
Skytta Hákon Þór Svavarsson mundar haglabyssuna í leirdúfuskotfiminni þar sem þrjár umferðir fóru fram í gær.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Châteauroux
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Hákon Þór Svavarsson varð í gær annar Íslendinga til að keppa í leirdúfuskotfimi með haglabyssu á Ólympíuleikum og sá fyrsti frá því Alfreð Karl Alfreðsson hafnaði í 47. sæti í greininni á leikunum í Sydney árið 2000.
Hákon hóf keppni á fyrri degi í undankeppninni í Châteauroux í Frakklandi, en skotkeppnin fer fram í borginni, sem er 270 kílómetra suður af París.
Hákon tók þátt í þremur umferðum af fimm í undankeppninni í gær og komst vel frá sínu. Tvær síðustu umferðirnar fara fram í dag. Hákon hitti úr 69 skotum og klikkaði á sex, sem dugði honum upp í 22. sæti fyrir seinni daginn í dag.
Þess má geta að Alfreð
...