![Bílar Vegagerðin áætlar að umferðin yfir árið aukist um 3,4%.](/myndir/gagnasafn/2024/08/03/ec767f41-c9a2-4cc8-a926-67e53162436e.jpg)
Umferðin á hringveginum í nýliðnum júlímánuði var einu prósentustigi meiri en í sama mánuði í fyrra og hefur aldrei fyrr mælst meiri umferð á hringveginum. Umferðin á höfuðborgarsvæðinu var 3,2% meiri í júlí en í sama mánuði í fyrra.
Í umfjöllun Vegagerðarinnar um umferðarmælingarnar á hringveginum kemur fram að meðalumferðaraukningin í seinasta mánuði hafi verið 2,8%, svo þessi aukning nú er talsvert undir meðallagi. Þessi litla aukning leiddi engu að síður til þess að slegið var umferðarmet um hringveginn í júlí, sem aftur leiðir til þess að líklega verður þetta nýtt heildarmet, þar sem júlí er jafnan umferðarmesti mánuður ársins á hringveginum. Alls fóru samtals 126 þúsund ökutæki yfir mælisniðin 16 á dag í júlí. Hafa ber í huga að sama ökutækið getur komið fram á fleiri en einum stað,“ segir þar.