Tvíbent gleði yfir lausn saklauss fólks

Rússland og Bandaríkin sömdu í vikunni um gagnkvæma lausn fanga í umfangsmestu skiptum af því tagi síðan í kalda stríðinu fyrra. Sumir vona að það sé til marks um þíðu á tvísýnum tímum, en það er því miður óskhyggja.

Ástæða er til að fagna endurheimtu frelsi fjölda manna, sem harðstjórn Vladímírs Pútíns fangelsaði að ósekju. Það var brýnt að leysa þá eftir skuggalegan dauða stjórnarandstöðuhetjunnar Alexeis Navalníjs í rússnesku fangelsi nú í febrúar.

Meðal þeirra, sem leystir voru úr haldi, má nefna Evan Gershkovich, blaðamann Wall Street Journal, sem áður hefur verið getið á þessum stað, Alsu Kurmasheva, fréttamann Radio Liberty, og Pulitzer-­verðlaunahafann Vladimir Kara-Murza.

Engan blaðamann skyldi hneppa í varðhald fyrir það eitt að vinna vinnuna sína. Það var þó það sem henti þau. Að hluta til vegna þess að þau sögðu fréttir, sem Pútín vildi ekki að frétt­ust, en í raun ekki síður vegna þess að Pútín vantaði gísla, vantaði skiptimynt í einmitt

...