Björgvin Jóhannsson fæddist í Reykjavík 9. júlí 1981. Hann lést á Landspítalanum 6. júlí 2024 eftir erfið veikindi.

Foreldrar hans eru Anna Kristín Svavarsdóttir, f. 11. maí 1960 og Jóhann Guðmundsson, f. 24. júní 1958.

Systkini hans eru Marteinn Jóhannsson, f. 10. apríl 1984 og Rut Jóhannsdóttir, f. 6. desember 1987.

Systursynir hans eru Ólafur Jóhann Sigurðsson, f. 20. júní 2013, Aron Bjarni Sigurðsson, f. 11. febrúar 2016 og Heiðar Máni Sigurðsson, f. 3. maí 2018.

Björgvin ólst upp í Breiðholtinu og gekk í Hólabrekkuskóla og Fjölbraut í Breiðholti.

Hann hafði mikinn áhuga á körfubolta, rokktónlist, bíómyndum og tölvuleikjum. Hann var mikill fjölskyldumaður, vinur vina sinna og átti einstakt

...