![Innipúkinn Páll Óskar og Skrattar fóru á kostum á Innipúkanum í ár.](/myndir/gagnasafn/2024/08/06/6e57659c-6cca-4037-abf0-d1a351bb56e6.jpg)
Innipúkinn Páll Óskar og Skrattar fóru á kostum á Innipúkanum í ár.
— Ljósmynd/Brynjar Snær
Í miðborg Reykjavíkur var tónlistarhátíðin Innipúkinn haldin í hlýjunni innandyra eins og hefð er fyrir. Hátíðin fór fram á tveimur sviðum í Gamla bíói og á Röntgen og er talið að um þúsund manns hafi mætt hvern dag.
„Það var gríðarlega góð stemning, eiginlega bara aldrei betri. Allt tónlistarfólkið var glatt og ánægt með gesti. Rigningin í gær skipti okkur engu máli þar sem tónleikarnir voru bara inni og voru allir bara í miklu stuði,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson skipuleggjandi Innipúkans.
Hátíðardagskráin var af dýrari gerðinni en tónlistafólk á borð við Unu Torfa, Pál Óskar, Hipsumhamps, Hatara og Vök skemmtu fyrir gestum langt fram á kvöld.
Stuð í Neskaupstað
María Bóel Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Neistaflugs Neskaupstaðar, segir
...