Jónas Guðbjörn Jónsson formaður þjóðhátíðarnefndar segir að hátíðin hafi heppnast mjög vel í ár. Hátíðin fagnaði í ár 150 ára afmæli og var því lagður sérstakur metnaður í tónlistaratriði og gamlar hefðir voru endurvaktar með tilheyrandi pompi og prakti
![Þjóðhátíð Gengið frá í Herjólfsdal eftir Þjóðhátíð. Hátíðin heppnaðist vel og vel var mætt á hana þrátt fyrir að um helgina hafi verið smá rigning og rok.](/myndir/gagnasafn/2024/08/06/e88d0c69-d33b-40a9-ab2c-9494e68adf02.jpg)
Þjóðhátíð Gengið frá í Herjólfsdal eftir Þjóðhátíð. Hátíðin heppnaðist vel og vel var mætt á hana þrátt fyrir að um helgina hafi verið smá rigning og rok.
— Morgunblaðið/Óskar Pétur
Guðrún S. Arnalds
gsa@mbl.is
Jónas Guðbjörn Jónsson formaður þjóðhátíðarnefndar segir að hátíðin hafi heppnast mjög vel í ár. Hátíðin fagnaði í ár 150 ára afmæli og var því lagður sérstakur metnaður í tónlistaratriði og gamlar hefðir voru endurvaktar með tilheyrandi pompi og prakti.
„Þetta gekk ótrúlega vel fyrir sig þrátt fyrir margar áskoranir í veðrinu, en við tækluðum það að mínu mati bara mjög vel. Það virðist vera að allt hafi bara farið vel fram, dagskráin
...