Einbeittur Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR hugsi við keppni í Einvíginu á Nesinu í gær en hann vann þá góðgerðarmótið í fyrsta sinn.
Einbeittur Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR hugsi við keppni í Einvíginu á Nesinu í gær en hann vann þá góðgerðarmótið í fyrsta sinn. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Kylfingurinn Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR stóð uppi sem sigurvegari í Einvíginu á Nesinu sem fram fór í 28. sinn á Nesvellinum á Seltjarnarnesi í gær. Er þetta í fyrsta sinn sem Dagbjartur hrósar sigri á mótinu, sem er árlegt góðgerðar­mót Nes­klúbbs­ins, NK.

...