Grétar Snær Hjartarson fæddist 7. ágúst 1937. Hann lést 11. júní 2024.

Hann var sonur hjónanna Aðalheiðar Rögnu Sveinsdóttur kennara og organista og Hjartar Hjálmarssonar skólastjóra. Foreldrar Rögnu voru Sigríður Oddný Benediktsdóttir og Sveinn Gunnlaugsson. Foreldrar Hjartar voru Guðleif Kristín Þorsteinsdóttir og Hjálmar Stefán Þorláksson.

Grétar kvæntist 28.1. 1961 eftirlifandi eiginkonu sinni Sigrúnu Sigurðardóttur, f. 7.1. 1940. Hún er dóttir Dórótheu Jóhannesdóttur húsmóður og Sigurðar Magnúsar Jónssonar sjómanns og verkamanns. Börn Grétars og Sigrúnar eru: 1) Sigurður Magnús, f. 11.10. 1960, giftur Evu Nittaya Sudsawat Grétarsdóttur, börn Sigurðar eru a) Helga Rún, f. 1997, sambýlismaður hennar er Karel Atli Ólafsson, synir þeirra eru I) Adriel Máni, f. 2017, og II) Atlas Örn, f. 2020. b) Grétar Songkran, f. 2003, c) Sigrún Jitlada, f.

...