Erna Sóley Gunnarsdóttir Íslandsmethafi í kúluvarpi er mætt til Parísar til að keppa á sínum fyrstu Ólympíuleikum. Erna mætir til leiks í frönsku höfuðborginni á morgun klukkan 8.25 er undankeppnin í kúluvarpinu fer fram á Stade de France, glæsilegum þjóðarleikvangi Frakka
Ólympíuþorpið Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir fyrir framan ólympíuþorpið góða í París en hún er á sínum fyrstu Ólympíuleikum.
Ólympíuþorpið Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir fyrir framan ólympíuþorpið góða í París en hún er á sínum fyrstu Ólympíuleikum. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Í París

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Erna Sóley Gunnarsdóttir Íslandsmethafi í kúluvarpi er mætt til Parísar til að keppa á sínum fyrstu Ólympíuleikum. Erna mætir til leiks í frönsku höfuðborginni á morgun klukkan 8.25 er undankeppnin í kúluvarpinu fer fram á Stade de France, glæsilegum þjóðarleikvangi Frakka. Hún ræddi við Morgunblaðið í ólympíuþorpinu.

Sefur vel í papparúminu

„Þetta er geggjað. Að vera í kringum alla þessa flottu íþróttamenn frá öllum þessum þjóðum er geggjuð stemning. Þetta er svakalega flott. Aðstæðurnar í þorpinu eru flottar, matsalurinn er geggjaður og maturinn mjög góður, þótt einhverjir séu ósammála mér. Það er ekkert að pappakassarúmunum og ég sef mjög vel. Það er svolítið heitt en ég er með viftu,“

...