Landsteinar hafa komið hér nokkrum sinnum fyrir gegnum tíðina. Tíðkast aðeins í fleirtölu, „landsteinn“ fyrirfinnst enginn, og merkir bókstaflega steinar í fjöruborði

Landsteinar hafa komið hér nokkrum sinnum fyrir gegnum tíðina. Tíðkast aðeins í fleirtölu, „landsteinn“ fyrirfinnst enginn, og merkir bókstaflega steinar í fjöruborði. Lengi máttum við þola það að útlendingar fiskuðu hér uppi í landsteinum: alveg við ströndina. Og þegar við förum út fyrir landsteinana, förum við til útlanda.