Kristinn E. Hrafnsson myndlistarmaður opnar sýninguna Úthverft á hvolfi í Galleríi Úthverfu á Ísafirði á morgun, föstudag, kl. 16, og stendur hún til 1. september. „Sýningarstaður sem heitir jafn inspírererandi nafni og Úthverfa hlýtur að hafa áhrif á það hvernig maður vinnur og raðar hlutunum saman. Titil sýningarinnar má rekja til staðarins, en við vinnslu hennar rifjuðust upp ævagömlum verk um speglun hluta og hugmynda sem kalla má umsnúninga. Þetta eru verk um rýmið og staðinn á réttunni og röngunni, samhverfuna og speglunina og auðvitað pósitívuna og negatívuna. Ég er í raun enn að gera þetta, þó með öðrum hætti sé og ekki endilega sem úthverfu, heldur sem sjónarhorn, en í ákveðnu samhengi má segja að það sé eitt og hið sama. Sjónarhornin ráða því hvernig við sjáum og upplifum hlutina. Heimurinn úthverfur á hvolfi er jafn raunverulegur heimur og hinn – það er bara eitt sjónarhorn af mörgum,“ skrifar Kristinn m.a.
...