Fimm íslenskir íþróttamenn eru á leið á Paralympics sem verða settir í París 28. ágúst. Á blaðamannafundi í Toyota í Kauptúni í gær voru keppendurnir fimm kynntir til leiks. Hópurinn, sem inniheldur fjóra sundmenn og eina frjálsíþróttakonu, heldur utan til Parísar 24
![Fimm Már Gunnarsson, Ingeborg Eide Garðarsdóttir og Róbert Ísak Jónsson, Thelma Björg Björnsdóttir og Sonja Sigurðardóttir fyrir framan.](/myndir/gagnasafn/2024/08/09/55677ce6-d9cf-4a2f-b5c7-864c759702b9.jpg)
Fimm Már Gunnarsson, Ingeborg Eide Garðarsdóttir og Róbert Ísak Jónsson, Thelma Björg Björnsdóttir og Sonja Sigurðardóttir fyrir framan.
— Morgunblaðið/Eggert
Paralympics
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Fimm íslenskir íþróttamenn eru á leið á Paralympics sem verða settir í París 28. ágúst. Á blaðamannafundi í Toyota í Kauptúni í gær voru keppendurnir fimm kynntir til leiks.
Hópurinn, sem inniheldur fjóra sundmenn og eina frjálsíþróttakonu, heldur utan til Parísar 24. ágúst til lokaundirbúnings en fyrsti íslenski keppandinn stígur á stokk 29. ágúst.
Róbert Ísak í annað sinn
Róbert Ísak Jónsson úr Firði og SH ríður á vaðið 29. ágúst þegar hann keppir í 100 metra flugsundi 29. ágúst.
Róbert Ísak keppir í S14 flokki þroskahamlaðra og tekur nú þátt á sínum öðrum Paralympics, en hann keppti líka á mótinu
...