![](/myndir/gagnasafn/2024/08/09/ec9b839a-efe3-4f49-bfb9-16cb3ffec4ed.jpg)
Elleftu tónleikar sumardjasstónleikaraðar veitingastaðarins Jómfrúarinnar við Lækjargötu verða haldnir á morgun, laugardag. Þar kemur fram söngkonan Margrét Eir. Með henni leika Börkur Hrafn Birgisson á gítar, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Óskar Þormarsson á trommur. „Þau munu grípa lög úr öllum áttum og smyrja á þau dásamlegu djassþeli,“ eins og segir í viðburðarkynningu. Tónleikarnir fara fram utan dyra á Jómfrúartorginu. Þeir hefjast kl. 15 og standa til kl. 17. Aðgangur er ókeypis.