![Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða](/myndir/gagnasafn/2024/08/09/68ea0e9f-0b92-40e5-83c2-663311890a39.jpg)
Það má velta því fyrir sér hvort Seðlabankinn sé með óbreyttri vaxtastefnu að endurtaka fyrri nálgun þegar hátt vaxtastig var notað til að viðhalda óraunhæfu gengi krónunnar á sama tíma og almenningur og fyrirtæki voru hrakin í lántökur í verðtryggðum krónum og erlendum myntum.
Þetta segir Jón Sigurðsson forstjóri Stoða í bréfi sínu til hluthafa félagsins. Hann segir að nauðsynlegt sé að byrja vaxtalækkunarferli strax á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabankans. Morgunblaðið hefur bréfið undir höndum og fjallað er nánar um innihald þess í blaðinu í dag.
Í bréfinu víkur Jón að umræðu um efnahagsmál og segir ríkið ýta undir þenslu með auknum útgjöldum á meðan atvinnulífið hagræði í rekstri. Þá fjallar hann um neikvæða umræðu í garð ferðaþjónustunnar, stöðuna á hlutabréfamarkaði, fjárfestingaumhverfið,
...