![Manndráp Kona var í júlí dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í 10 ára fangelsi fyrir að ráða sambýlismanni sínum bana í íbúð í Bátavogi í Reykjavík.](/myndir/gagnasafn/2024/08/09/c2abc64a-5060-4e73-bcc9-6ab9da3fde63.jpg)
Héraðsdómur Reykjavíkur telur að það hafi ekki vakað fyrir Dagbjörtu Guðrúnu Rúnarsdóttur að bana sambýlismanni sínum í aðdraganda andláts hans. Telur dómurinn að draga megi þá ályktun að Dagbjört hafi í fyrstu beitt manninn alvarlegum líkamsmeiðingum í trausti þess að hann myndi lifa það af.
„Á hinn bóginn var ákærðu ljóst hversu bágborið ástand hans var og henni gat ekki dulist að áframhaldandi líkamsmeiðingar, sér í lagi á viðkvæmum líkamspörtum eins og hálsi, væru líklegar til að bana brotaþola,“ segir í dómi héraðsdóms sem hefur nú verið birtur á vef dómstólsins.
Dagbjört var dæmd í 10 ára fangelsi í lok júlí og gert að greiða tveimur börnum mannsins samtals fjórar milljónir króna í bætur.
Þá er tekið fram í dómnum, að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendi til þess að Dagbjört hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum á verknaðarstundu. Styðst það við niðurstöðu matsgerðar í málinu
...