![Úrslit Þórir Hergeirsson hafði ástæðu til að fagna í gærkvöldi.](/myndir/gagnasafn/2024/08/09/90d5effa-ddab-4425-b17c-2de37150c7d7.jpg)
Úrslit Þórir Hergeirsson hafði ástæðu til að fagna í gærkvöldi.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Noregur, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, og gestgjafar Frakklands mætast í úrslitaleik handknattleiks kvenna á Ólympíuleikunum í París á morgun.
Noregur lagði Danmörku í undanúrslitum í gærkvöldi, 25:21, og freistar Þórir þess að vinna sitt annað ólympíugull sem þjálfari Noregs.
Í gær lögðu heims- og ólympíumeistarar Frakklands Svíþjóð að velli, 31:28, eftir framlengingu.