Bandaríkjamaðurinn Sam Watson sló eigið heimsmet og um leið ólympíumetið í hraðklifri karla þegar hann hafði betur gegn Reza Alipour frá Íran í bronsviðureigninni á Ólympíuleikunum í París í gær. Watson klifraði á 4,74 sekúndum og sló þannig eigið…
![Met Sam Watson kátur með nýja heims- og ólympíumetið.](/myndir/gagnasafn/2024/08/09/be90e0ce-0403-44d4-9eaa-8a579ec5bba3.jpg)
Met Sam Watson kátur með nýja heims- og ólympíumetið.
— AFP/Jonathan Nackstrand
Bandaríkjamaðurinn Sam Watson sló eigið heimsmet og um leið ólympíumetið í hraðklifri karla þegar hann hafði betur gegn Reza Alipour frá Íran í bronsviðureigninni á Ólympíuleikunum í París í gær. Watson klifraði á 4,74 sekúndum og sló þannig eigið met frá því í apríl á þessu ári, sem var 4,79 sekúndur. Veddriq Leonardo frá Indónesíu vann gullið með því að klifra á 4,75 sekúndum gegn Peng Wu frá Kína, sem klifraði á 4,77 sekúndum.