Benedikt Þórir Ólafsson fæddist á Selfossi 10. apríl 1950. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 23. júlí 2024.

Foreldrar hans voru hjónin Hugborg Þuríður Benediktsdóttir, f. í Dalasýslu 27. febrúar 1922, d. 23. október 2002, og Ólafur Jónsson framkvæmdastj., f. í Reyðarfirði 29. mars 1922, d. 18. febrúar 2005. Þeim hjónum varð þriggja sona auðið og eru bræður Benedikts þeir Jón, f. 11. apríl 1948, kona hans Sigurborg Valdimarsdóttir, f. 14. desember 1948, d. 12. mars 2024, og Kjartan Þorvarður, f. 2. nóvember 1953, kona hans Arna Kristín Hjaltadóttir, f. 28. september 1957.

Benedikt kvæntist þann 8. ágúst 1981 Ástu Ingibjörgu Hallsdóttur leikskólakennara, f. 13. janúar 1953 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru hjónin Stefanía Runólfsdóttir, f. 6. júní 1923 á Snæfellsnesi, d. 8. maí 2013, og Hallur Símonarson blaðamaður, f. 16. ágúst 1927

...