Jóna Þormóðsdóttir fæddist 16. mars 1965 á Höfn í Hornafirði. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 26. júlí 2024.

Foreldrar hennar voru Þormóður Einarsson, bóndi á Blábjörgum í Álftafirði, f. 27. september 1934 í Suður-Múlasýslu, d. 24. janúar 2002, og Erla Einarsdóttir, f. 15. nóvember 1934 í Reykjavík, d. 4. maí 2010 á Höfn í Hornafirði. Hálfbróðir sammæðra er Brynjólfur Erlingsson, f. 15. maí 1958.

Þann 22. júlí 2024 giftist Jóna Þormóðsdóttir eftirlifandi eiginmanni sínum, Ásgeiri Ásgeirssyni, f. 15. janúar 1966. Dóttir Jónu og Ásgeirs er Sandra María Ásgeirsdóttir, f. 28. ágúst 1989. Eiginmaður hennar er Jóhann Már Þorsteinsson, f. 24. janúar 1989. Börn þeirra eru Þorsteinn Breki Jóhannsson, f. 8. nóvember 2017, og Heiðrós Birta Jóhannsdóttir, f. 17. janúar 2022. Synir Jónu og Ásgeirs eru: 1) Einar Ásgeir Ásgeirsson, f. 5. nóvember

...