„Ég verð að segja að ég algjörlega elska Ísland,“ sagði diskógoðsögnin Kathy Sledge, í hljómsveitinni Sister Sledge, í samtali við K100 en hún hefur dvalið hér á landi síðustu daga. Hún hélt heljarinnar diskópartí í Hörpu á föstudagskvöld. Sledge hefur verið einstaklega heppin með veður og segir Íslandsferðina hafa verið hápunkt tónleikaferðalags hennar sem nú er á enda.
Spurð út í hvernig það hafi verið að verða skyndilega stórstjarna á áttunda og níunda áratugnum viðurkennir hún að hafa ekki búist við þeirri velgengni sem bandið átti eftir að ná en hún lýsti því meðal annars hvernig framleiðandi hennar tilkynnti henni að eitt frægasta lag bandsins, „We are family“, yrði algjör smellur. „Hann vissi það,“ segir Sledge.
Viðtalið má sjá í heild sinni á K100.is