Kristín Sif lenti í ævintýri með puttaling á dögunum, ásamt manni sínum, Stefáni, en hún sagði frá ferðinni í þættinum Ísland vaknar í vikunni. Hún lýsti því hvernig þau ákváðu að taka puttalinginn upp í bílinn á leið frá Mývatnssveit til Húsavíkur…
— Ljósmynd/Unsplash

Kristín Sif lenti í ævintýri með puttaling á dögunum, ásamt manni sínum, Stefáni, en hún sagði frá ferðinni í þættinum Ísland vaknar í vikunni. Hún lýsti því hvernig þau ákváðu að taka puttalinginn upp í bílinn á leið frá Mývatnssveit til Húsavíkur en föttuðu stuttu síðar að kerran sem þau ætluðu að taka með til Húsavíkur hefði orðið eftir. Þeir Þór og Bolli inntu hana þá eftir því hvort puttalingurinn hefði ekki orðið smeykur þegar bílstjórinn þurfti skyndilega að snúa við. Ýjuðu þeir að því að þau hjónin gætu vel hrætt saklausa puttalinga. Hlustaðu á söguna á K100.is.