Það var hamagangur í öskjunni í gær þegar ungmenni, sem sækja Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna ‘78 og Tjarnarinnar, kepptust við að skreyta vagninn sinn fyrir Gleðigönguna í dag. Hún verður að venju gengin og ekin frá Hallgrímskirkju á…
— Morgunblaðið/Eyþór

Það var hamagangur í öskjunni í gær þegar ungmenni, sem sækja Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna ‘78 og Tjarnarinnar, kepptust við að skreyta vagninn sinn fyrir Gleðigönguna í dag. Hún verður að venju gengin og ekin frá Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti niður að Hljómskálagarði og liggur leiðin eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi að Skothúsvegi. Gangan hefst klukkan tvö, en hún er hápunktur Hinsegin daga, sem staðið hafa síðan á þriðjudag. » 8