Sambíóin og Smárabíó Trap / Gildra ★★★½· Leikstjórn: M. Night Shyamalan. Handrit: M. Night Shyamalan. Aðalleikarar: Josh Hartnett, Ariel Donoghue, Saleka Shyamalan og Alison Pill. Bretland, Yemen og Bandaríkin, 2024. 95 mín.
Kvikmyndir
Jóna Gréta
Hilmarsdóttir
Leikstjórinn M. Night Shyamalan er þekktastur fyrir kvikmyndina Sjötta skilningarvitið (The Sixth Sense, 1999) enda hefur sú mynd orðið eins konar klassík í hryllingsmyndagreininni. Nýjasta mynd Shyamalan, Gildra, er hins vegar eins konar blanda af hryllings- og hasarmynd. Fyrri helmingur myndarinnar gerist allur á tónleikum. Feðginin Cooper (Josh Hartnett) og Riley (Ariel Donoghue) fara saman á tónleika hjá poppstjörnunni Lady Raven (Saleka Shyamalan) en Riley er mikill aðdáandi. Cooper tekur eftir því að öryggisgæslan á tónleikunum er óvenjumikil sem veldur honum sýnilega áhyggjum.
Áhorfendur sem hafa séð stikluna (e. trailer) vita nú þegar af hverju þetta veldur Cooper áhyggjum (og
...