Minnisvarði Ný stytta af Kobe Bryant og dóttur hans Gianna Bryant hefur verið afhjúpuð við leikvang LA Lakers. Styttan er önnur af þeim þremur styttum af Bryant sem félagið reisir honum til heiðurs. Fyrri styttan er sex metra há bronsstytta af…
Minnisvarði Ný stytta af Kobe Bryant og dóttur hans Gianna Bryant hefur verið afhjúpuð við leikvang LA Lakers. Styttan er önnur af þeim þremur styttum af Bryant sem félagið reisir honum til heiðurs. Fyrri styttan er sex metra há bronsstytta af Bryant í treyju númer 8 og verður sú þriðja af honum í treyju númer 24. Styttan nýja endurspeglar fallegt augnablik milli feðgina frá 29. desember árið 2019, um það bil mánuði fyrir þyrluslysið örlagaríka, þegar þau horfðu á heimaleik Lakers á móti Dallas Mavericks.