Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Andri Tryggvason er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt KR frá Val. Skrifaði hann undir fimm ára samning. Guðmundur Andri er 24 ára sóknar- og miðjumaður. Pólska körfuknattleikskonan Katarzyna Trzeciak hefur samið…

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Andri Tryggvason er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt KR frá Val. Skrifaði hann undir fimm ára samning. Guðmundur Andri er 24 ára sóknar- og miðjumaður.

Pólska körfuknattleikskonan Katarzyna Trzeciak hefur samið við Grindavík um að leika með liðinu á næsta tímabili. Trzeciak er 32 ára bakvörður sem lék með Stjörnunni á síðasta tímabili. Hún á að baki leiki með pólska A-landsliðinu.

Knattspyrnumarkvörðurinn Halla Margrét Hinriksdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna. Halla er 29 ára gömul og var síðast varamarkvörður Breiðabliks á síðasta tímabili, án þess að koma við sögu.

Sveit Bandaríkjanna í 4x100 metra boðhlaupi kvenna, skipuð Sha’Carri Richardson, Melissu Jefferson,

...