Útlit er fyrir gott veður um helgina, sérstaklega í dag, en ekki alveg jafn gott á sunnudag. Í dag verður lítill vindur og lengst af bjart. Háský í morgunsárið gætu valdið því að það dragi fyrir sólu um tíma en spáð er sól á höfuðborgarsvæðinu þegar líða tekur á daginn. Hiti verður um 10-14°C yfir daginn. Á morgun verður ekki alveg jafn gott veður en þá verður dálítill vindur og líkur eru á skúrum. Svipað um allt land á sunnudag.