Þegar litið verður til baka til sumarsins 2024 verður neongrænn litur, orðið „brat“ og bandarísku forsetakosningarnar vafalaust áberandi í hugum margra.
En hvað er brat og hvernig tengist það kosningabaráttunni um æðsta embætti Bandaríkjanna? Brat er nýjasta plata söngkonunnar Charli XCX sem kom út í byrjun sumars og er hún troðfull af stuðandi lögum um partígellur sem haga sér eins og frekjur og skammast sín ekkert fyrir það. Platan er eiturgræn á lit, en Charli segist sjálf hafa reynt að velja lit sem veki óhug. Þrátt fyrir það virðist liturinn áberandi hvert sem maður lítur í sumar. Þá hafa margir aðdáendur Charli tekið upp á því að kalla þetta sumar „brat“-sumar. Netverjar trylltust svo aftur yfir fyrirbærinu þegar Charli birti í síðasta mánuði færslu á samfélagsmiðlinum X þar
...