Birgir Vigfússon fæddist 22. júlí 1941. Hann lést 17. júlí 2024. Útför Birgis fór fram 8. ágúst 2024.

Vegna mistaka birtist eftirfarandi grein ekki á útfarardegi þann 8. ágúst. Hlutaðeigandi eru beðnir innilegrar afsökunar á því.

Ég bjóst ekki við að þurfa að fylgja pabba til grafar svo snemma. Hann átti rétt um viku eftir í 83 ára afmælið sitt sem er kannski nokkuð hár aldur en hann bar hann vel og í mínum huga átti hann mörg ár eftir ólifuð. Það var svo ótal margt fram undan hjá honum sem hann hlakkaði til og var búinn að undirbúa en dauðinn gerir svo sannarlega ekki alltaf boð á undan sér. Við sjáum á eftir einstakri fyrirmynd, hlýjum og lífsglöðum pabba, tengdapabba, afa, langafa og ekki síst vini sem var alltaf tilbúinn að hjálpa, tók þátt af krafti í hverju því sem við tókum okkur fyrir hendur og fylgdist með öllum í kringum sig af athygli

...