![](/myndir/gagnasafn/2024/08/12/cd961eb7-b507-4a45-bd41-a5e89fdf57f1.jpg)
Hulda Clara Gestsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigruðu í Hvaleyrarbikarnum í golfi sem lauk í Hafnarfirði í gær. Mótið var um leið lokamótið á stigamótaröð Golfsambands Íslands 2024.
Hulda Clara varð stigameistari kvenna í fyrsta sinn og Aron Snær Júlíusson úr GKG varð stigameistari karla í annað sinn, en þau urðu bæði Íslandsmeistarar í golfi í síðasta mánuði.