Pálmi Þór Erlingsson fæddist í Reykjavík 28. júlí 1976. Hann varð bráðkvaddur 12. júlí 2024 á Spáni.

Foreldrar hans eru þau Anna Valdís Jónsdóttir, f. 8 apríl 1956, og Erlingur Garðarsson, f. 4. apríl 1949. Pálmi var yngstur af þremur systkinum. Hann á tvær eldri systur, þær Lilju Björk Erlingsdóttur, f. 1972, og Brynhildi Erlingsdóttur, f. 1970.

Pálmi giftist Elínu Sigríði Kristjánsdóttur, f. 1986, viðskiptafræðingi, árið 2017. Þau eignuðust þrjá drengi saman. Elsti sonur þeirra er Kristján Þór Pálmason, f. 2005. Einnig eiga þau tvíbura f. 2015, Baltastar Þór og Alexander Þór Pálmasyni. Auk þess á Pálmi dóttur, Guðfinnu Björgu, f. 2015. Pálmi og Elín skildu árið 2023.

Pálmi var mikill athafnamaður og átti mörg fyrirtæki gegnum tíðina. Uppfullur af hugmyndum og orku. Pálmi var lærður hársnyrtir

...