Eldfjallaeyjan minnir á sig á fleiri stöðum en á Reykjanesi um þessar mundir en á laugardaginn var talsvert líf í Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi. Er það áhugaverð staða því ekki hefur gosið þar síðan á landnámsöld en eldstöðvakerfið er þó virkt
![Fjallgarður Flogið yfir Ljósufjöll á Snæfellsnesi í vetrarbúningi.](/myndir/gagnasafn/2024/08/12/54c46832-8421-445b-a814-6fd1dcaba2bb.jpg)
Fjallgarður Flogið yfir Ljósufjöll á Snæfellsnesi í vetrarbúningi.
— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Eldfjallaeyjan minnir á sig á fleiri stöðum en á Reykjanesi um þessar mundir en á laugardaginn var talsvert líf í Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi. Er það áhugaverð staða því ekki hefur gosið þar síðan á landnámsöld en eldstöðvakerfið er þó virkt.
Spurður um þetta segir Páll Einarsson jarðfræðingur að þar hafi verið óvenjumargir skjálftar á laugardaginn en bendir á að þar hafi verið reytingur af
...