Sönnum kærleika fylgir friður. Og sönnum friði fylgir virk hlustun, skilningur, virðing og sanngirni, réttlæti og sátt, samhugur og umburðarlyndi.
Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson

Sigurbjörn Þorkelsson

Kæru vinir og samferðamenn, á kærleikans braut!

Hjartans þakkir fyrir hlýhug og velvild alla fyrr og síðar. Takk fyrir alla ykkar mikilvægu og dýrmætu þjónustu við lífið, höfund þess og fullkomnara, ráðgjafa þess og innblástur. Takk fyrir alla umhyggjuna, skilninginn, stuðninginn, samstöðuna og bænirnar bljúgu fyrr og síðar sem munað hefur um og sannarlega hefur ekki veitt af á oft á tíðum harðri og grýttri grund. Ég færi ykkur sumarsins kveðju með ósegjanlegu þakklæti og hlýjum faðmlögum.

Mætti kærleikans Guð fylla ykkur öll af von sinni og lífssýn, tilgangi og sínum heilaga og góða, heilnæma og fyrirgefandi, frelsandi, fyrirgefandi og lífgefandi anda.

Sannur listamaður

Hann talaði ekki endilega oft,

...