Landsbjörg og Landhelgisgæslan ræstu ásamt fleirum út viðbragðsaðila sína á áttunda tímanum í gærkvöldi vegna báts sem hafði hvolft í Hvalfirði.
Einn var um borð í bátnum og var hann fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús til aðhlynningar.
Maðurinn komst sjálfur í land en var blautur og kaldur þegar björgunarfólk náði til hans. Óhappið varð í innanverðum Hvalfirði, nærri Hvammsvík. Um seglbát var að ræða.