Norðurlandamót íslenska hestsins í Danmörku gekk vel og stóðu íslensku keppendurnir sig vel þrátt fyrir að vera flestir á lánshestum. Þeir höfðu knappan tíma til að kynnast hestunum áður en haldið var í braut
![Íslenski hesturinn Norðurlandamót fór fram dagana 8. til 11. ágúst í Herning. Mótið var vel sótt og Íslendingar í mörgum verðlaunasætum.](/myndir/gagnasafn/2024/08/13/c846a668-a2a9-41c2-a3cf-125f78b51ea2.jpg)
Íslenski hesturinn Norðurlandamót fór fram dagana 8. til 11. ágúst í Herning. Mótið var vel sótt og Íslendingar í mörgum verðlaunasætum.
— Ljósmynd/Hestefotograf Melissa
Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Norðurlandamót íslenska hestsins í Danmörku gekk vel og stóðu íslensku keppendurnir sig vel þrátt fyrir að vera flestir á lánshestum. Þeir höfðu knappan tíma til að kynnast hestunum áður en haldið var í braut. Aðeins einn hestur í íslenska liðinu kom frá Íslandi en aðrir knapar fengu hesta lánaða víðs vegar um Evrópu.
Sigurvegarar í fimmgangi ungmenna voru þau Védís Huld og Búi frá Húsavík með einkunnina 7,17.
...