![Söngdívan Celine Dion hefur ávítað og hæðst að kosningabaráttu Trumps.](/myndir/gagnasafn/2024/08/13/bb85fe13-33fd-4131-897d-e5a9ea5b4ec1.jpg)
Fjölskylda söngvarans Isaacs Hayes heitins hefur fyrirskipað Donald Trump að hætta samstundis að nota lagið „Hold On, I'm Comin“ í kosningabaráttu sinni. Guardian greindi frá því að fjölskylda Hayes hefði sent Trump og kosningateymi hans bréf þar sem hún hótaði lögsókn ef notkun á laginu yrði ekki stöðvuð. Er Trump og teymi hans sagt hafa brotið höfundarréttarlög og krefst fjölskyldan þriggja milljóna dala leyfisgjalds, er jafngildir um 430 milljónum íslenskra króna, vegna notkunar á laginu á árunum 2022 til 2024. Í bréfinu er því haldið fram að kosningateymi Trumps hafi vísvitandi og af mikilli ósvífni tekið þátt í því að brjóta höfundarréttinn þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um að hætta þessari ólöglegu notkun á laginu.
En fjölskylda Hayes er ekki sú eina sem hefur horn í síðu kosningateymis Trumps þessa dagana. Kanadíska stórsöngkonan
...