![Þjálfari Stefáns Teits er hættur.](/myndir/gagnasafn/2024/08/13/046a5178-fbff-4549-ba63-d6d237b54cf4.jpg)
Þjálfari Stefáns Teits er hættur.
Ryan Lowe er ei lengur þjálfari Stefáns Teits Þórðarsonar hjá Preston, sem leikur í ensku B-deildinni í fótbolta. Lowe hætti eftir að Preston tapaði fyrsta leik sínum í B-deildinni gegn Sheffield United, 2:0, á heimavelli. Lowe hafði verið þjálfari Preston í tvö og hálft ár. Í tilkynningu frá félaginu segir að ákvörðunin sé sameiginleg en Mike Marsh mun stýra liðinu tímabundið í næstu leikjum ásamt Peter Murphy og Ched Evans. Stefán Teitur gekk til liðs við Preston frá Silkeborg í Danmörku fyrr í sumar og byrjaði leikinn gegn Sheffield United.