Tvær stórar sýningar eru á Listasafninu á Akureyri. Annars vegar samsýningin Er þetta norður? sem er í sölum 01-05 á efstu hæðinni og hins vegar sýningin Stranded í sölum 10-11. Stranded er stórt sýningarverkefni sem kemur frá Bremen í Þýskalandi
![Stranded Á sýningunni, sem er á tveimur hæðum, má sjá verk sextíu og þriggja listamanna. Sýningin hefur verið sett upp víða.](/myndir/gagnasafn/2024/08/13/a5ac1440-d238-43af-801a-4852a5ae564f.jpg)
Stranded Á sýningunni, sem er á tveimur hæðum, má sjá verk sextíu og þriggja listamanna. Sýningin hefur verið sett upp víða.
— Ljósmynd/Daníel Starrason
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Tvær stórar sýningar eru á Listasafninu á Akureyri. Annars vegar samsýningin Er þetta norður? sem er í sölum 01-05 á efstu hæðinni og hins vegar sýningin Stranded í sölum 10-11.
Stranded er stórt sýningarverkefni sem kemur frá Bremen í Þýskalandi. Wolfgang Hainke er umsjónarmaður verkefnisins ásamt Freyju Reynisdóttur sem er verkefnisstjóri hjá Listasafni Akureyrar. Hönnun sýningarinnar og vinnsla verkanna er í anda Flúxushreyfingarinnar og hefur hún verið sett upp víða, eins og í Búdapest í Ungverjalandi og í Recife í Brasilíu. Sýningin stendur til 29. september.
„Sýningin snýst um málverk sem Franz Wulfhagen gerði af hvalreka árið 1669 í Bremen. Þetta er
...