Valur hefur kallað knattspyrnumanninn Orra Hrafn Kjartansson aftur til félagsins en hann hafði verið á láni hjá uppeldisfélaginu Fylki í sumar. Orri Hrafn hefur verið að glíma við meiðsli sem og veikindi undanfarna mánuði en er kominn með…
Hlíðarendi Orri Hrafn hefur verið kallaður aftur til Vals frá Fylki.
Hlíðarendi Orri Hrafn hefur verið kallaður aftur til Vals frá Fylki. — Ljósmynd/Kristinn Steinn

Valur hefur kallað knattspyrnumanninn Orra Hrafn Kjartansson aftur til félagsins en hann hafði verið á láni hjá uppeldisfélaginu Fylki í sumar. Orri Hrafn hefur verið að glíma við meiðsli sem og veikindi undanfarna mánuði en er kominn með leikheimild hjá Val og gæti tekið þátt í stórleiknum gegn Breiðabliki næsta fimmtudagskvöld. Orri gekk til liðs við Val í desember 2021 fyrir háar upphæðir eftir frábært tímabil með Fylki.