hvaða partur er nú þetta
Glæsileg Donald Glover og Maya Ersknine í Mr. and Mrs. Smith, eða Herra og frú Smith, en rýnir er ánægður með frammistöðu þeirra.
Glæsileg Donald Glover og Maya Ersknine í Mr. and Mrs. Smith, eða Herra og frú Smith, en rýnir er ánægður með frammistöðu þeirra.

af sjónvarpsþáttum

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Heitasta leikarapar Hollywood árið 2005 var án efa Angelina Jolie og Brad Pitt. Þóttu þau öðrum fegurri og kynþokkafyllri, sjóðandi heitt stjörnupar sem bjó yfir miklu aðdráttarafli þegar kom að bíóaðsókn. Sagan segir að þau hafi orðið ástfangin við tökur á kvikmyndinni Mr. and Mrs. Smith en nokkrum árum síðar skildu þau með látum, eins og frægt er. Kvikmyndin um herra og frú Smith var mikið þunnildi, gekk að mestu út á tilraunir hjónanna til að myrða hvort annað. Vissi hvort um sig í fyrstu ekki af því að hitt væri leigumorðingi og þegar það kom svo í ljós – og um leið að þau þyrftu að drepa hvort annað – færðist fjör í leikinn. Líklega er óþarft að taka fram að kvikmyndin var ekki byggð á sönnum atburðum.

Allt

...