Danski knattspyrnumaðurinn Matthias Præst verður leikmaður KR eftir yfirstandandi tímabil. Frá þessu greindi Vesturbæjarfélagið í gær en Matthias er miðjumaður Fylkis. Hann hefur verið einn af lykilmönnum Fylkisliðsins sem er í neðsta sæti deildarinnar, stigi frá öruggu sæti.

Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Marcus Brown er genginn til liðs við Þór Þorlákshöfn. Brown er 26 ára bakvörður sem er einnig með ítalskt vegabréf. Hann skoraði tæp 20 stig og gaf fimm stoðsendingar að meðaltali í leik með Virtus Ragusa í ítölsku B2-deildinni á síðustu leiktíð.

Serbneski knattspyrnumaðurinn Dusan Brkovic er genginn til liðs við Leikni úr Reykjavík. Hann kemur til liðsins frá FH en hann hafði verið í litlu hlutverki í Hafnarfirðinum. Leiknir er í mikilli fallbaráttu í 1. deildinni en Dusan stóð sig vel með KA á

...