Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í kvöldávarpi sínu í gær að Úkraínumenn réðu nú yfir 74 þéttbýlisstöðum í Kúrsk-héraði, degi eftir að rússnesk stjórnvöld sögðu Úkraínumenn ráða yfir 28 þorpum og bæjum
Skriðdreki Úkraínskur T-72-skriðdreki sést hér í Súmí-héraði í vikunni, en héraðið liggur að Kúrsk-héraði og landamærum Rússlands og Úkraínu.
Skriðdreki Úkraínskur T-72-skriðdreki sést hér í Súmí-héraði í vikunni, en héraðið liggur að Kúrsk-héraði og landamærum Rússlands og Úkraínu. — AFP/Roman Pilipey

Stefán Gunnar Sveinsson

sgs@mbl.is

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í kvöldávarpi sínu í gær að Úkraínumenn réðu nú yfir 74 þéttbýlisstöðum í Kúrsk-héraði, degi eftir að rússnesk stjórnvöld sögðu Úkraínumenn ráða yfir 28 þorpum og bæjum. Sagði Selenskí að sókn Úkraínumanna héldi áfram í héraðinu þrátt fyrir mjög harða og erfiða bardaga sem þar

...