Samantha Smith er orðin Bliki.
Samantha Smith er orðin Bliki.

Bandaríska knattspyrnukonan Samantha Smith er gengin til liðs við Breiðablik frá Austfjarðaliðinu FHL. Samantha kemur til Breiðabliks á láni frá FHL en hún hefur farið á kostum hjá FHL og skorað 15 mörk í 14 deildarleikjum. FHL er komið upp í Bestu deildina og hefur haft mikla yfirburði í 1. deildinni. Breiðablik er í mikilli toppbaráttu í Bestu deildinni og aðeins stigi á eftir Íslandsmeisturum Vals.