Söngkonan Ragnheiður Gröndal kemur fram síðustu sumartónleikum ársins hjá Jazzklúbbnum Múlanum sem haldnir verða í kvöld, 14. ágúst, kl. 20 á Björtuloftum, Hörpu. Hún kemur fram ásamt Guðmundi Péturssyni gítarleikara og Birgi Steini Theodórssyni bassaleikara. „Þau ætla sér að veita hlustendum gleði í bland við að fanga djúpstæðar tilfinningar,“ eins og segir í tilkynningu. Efnisskráin er blanda af gamalli dægurtónlist og nýlegri tónlist sem er þeirra eigin.

Jazzklúbburinn Múlinn snýr síðan aftur í lok september með dagskrá á miðvikudagskvöldum fram í miðjan desember.