30 ára Aníta er Reykvíkingur en býr í Mosfellsbæ. Hún er sjúkraþjálfari að mennt frá HÍ og vinnur hjá Styrk sjúkraþjálfun. Áhugamálin eru aðallega fimleikar, en hún keppti í þeim sem unglingur, en einnig útivist með fjölskyldunni.


Fjölskylda Eiginmaður Anítu er Kjartan Elvar Baldvinsson, f. 1995, nemi í tölvunarfræði í HR. Börn þeirra eru Lilja Sól, f. 2022, og Ingvar Máni, f. 2024. Foreldrar Anítu eru Íris Björg Helgadóttir, f. 1976, búsett í Torrevieja á Spáni, og Einar S. Kristjánsson, f. 1969, búsettur í Mosfellsbæ.