Breska parið Zak Nelson og Elliot Griffiths hyggst snúa aftur til Íslands í október. Þeir lentu í hörðum árekstri á hringveginum í apríl fyrr á árinu. Þeir segja frá þessu á TikTok. „Okkur finnst mikilvægt að koma aftur á staðinn þar sem þetta …

Breska parið Zak Nelson og Elliot Griffiths hyggst snúa aftur til Íslands í október. Þeir lentu í hörðum árekstri á hringveginum í apríl fyrr á árinu. Þeir segja frá þessu á TikTok. „Okkur finnst mikilvægt að koma aftur á staðinn þar sem þetta gerðist til að takast á við sálræna áfallið, að Ísland sé vondur staður – af því að það er það ekki,“ segir Zak í nýju myndbandi. Auk þess vilji Elliot fá að sjá Reykjavík en hann fékk lítið að upplifa borgina í síðustu ferð þeirra til Íslands þar sem hann lá inni á Landspítalanum, þar sem þeir trúlofuðust. Nánar á K100.is.