Köttur Farþega var meinað að ferðast með kött í flugvél Icelandair.
Köttur Farþega var meinað að ferðast með kött í flugvél Icelandair. — Ljósmynd/Colourbox

Samgöngustofa hefur hafnað bótakröfu farþega, sem var meinað um far með flugvél Icelandair frá Minneapolis í nóvember árið 2022 vegna þess að hann var með kött meðferðis en hafði ekki nauðsynleg gögn í höndunum til að ferðast með dýr til Íslands.

Farþeginn átti bókað far frá Minneapolis til Kaupmannahafnar með millilendingu í Keflavík en var neitað um far með fluginu til Keflavíkur.

Neitaði að sýna köttinn

Í úrskurði Samgöngustofu er vitnað í upplýsingar frá Icelandair. Þar kemur fram að farþeginn innritaði sig í Minneapolis en eftir innritunina tók hann fram að hann væri með hjálpardýr með sér. Starfsmaður bað um að fá að sjá dýrið og skýrslu frá Matvælastofnun um heimild fyrir dýrinu. Farþeginn sagðist ætla að sækja skýrsluna, sem væri í fartölvu í bíl hans en kom ekki til baka í innritunina heldur fór beint í hliðið.

...