![](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/fa62768d-ec52-47a6-a781-df308f3b53eb.jpg)
Píanóleikarinn og tónskáldið Romain Collin heldur tónleika í tveimur þáttum í Gamla bíói í kvöld, 15. ágúst, kl. 20. Fyrir hlé leikur hann með söngvaranum og lagahöfundinum S. Carey, sem ferðast líka um heiminn sem trommari og er einn af stofnmeðlimum hljómsveitarinnar Bon Iver. Eftir hlé kynnir Romain rafhljómsveit sína FOSS, verkefni sem hann skapaði í einangrun á Íslandi í heimsfaraldrinum.
Romain heldur til í New York og hefur í tvígang verið tilnefndur til Grammy-verðlauna, að því er segir í tilkynningu. Hann hefur komið til Íslands ítrekað síðan 2019 og haldið þrjár tónleikaraðir í Hannesarholti og í Vík í Mýrdal.