Skáldsaga Hrein ★★★★· Eftir Aliu Trabucco Zerán. Jón Hallur Stefánsson þýddi. Benedikt bókaútgáfa, 2024. Kilja, 241 bls.
![Höfundurinn Gagnrýnandi segir skáldsöguna Hrein eftir Aliu Trabucco Zerán athyglisverða og vel skrifaða.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/ce950632-82c6-4105-82ec-b441b5de2a98.jpg)
Höfundurinn Gagnrýnandi segir skáldsöguna Hrein eftir Aliu Trabucco Zerán athyglisverða og vel skrifaða.
Bækur
Einar Falur
Ingólfsson
Þegar frúin á heimilinu þar sem Estela García starfar sem vinnukona stendur hana dag einn að því að máta nýjan kjól sem frúin hafði keypt sér viðurkennir Estela að í huganum hafi kviknað með sér hugsun.
„Mig langaði að sjá hana dauða.“ (36)
Vinnukonan segir áheyrendum sínum að hafa engar áhyggjur, frúin sé ennþá lifandi – það er annar í fjölskylduni sem er látinn. En framkoman við Estelu er alltaf niðrandi og það virðist nánast litið á hana eins og tilfinningalausan þræl á heimilinu; með niðurlægjandi hætti fylgist frúin með vinnukonunni fara úr kjólnum og segir henni að þvo flíkina. Vinnukonan klæddist öðru, þröngum og óþægilegum þernukjólum, einum
...